|
|
04.07.2007 14:05:34 / duna54
»
19.06.2007 22:46:03 / duna54
Ég er að prufa síðu hjá 123.is þar eru komnar myndir. bæbæ
http://www.123.is/kopaskerskerling/
»
14.06.2007 18:33:23 / duna54
Já Sigga, Stip og krakkarnir eru búin að vera hér síðan á
mánudagskvöld en þá settu þau dótið í gám, þau eru sem sagt flutt
frá Raufarhöfn  . Þau fóru héðan í morgun og það er bara búin
að vera þögn síðan. Vá munur. Enda litlu greyin veikir báðir, fyrst
var Elías með 40 stiga hita og svo þegar hann var að skána þá var
Rafael komin með hita og hann var veikur í dag þegar þau fóru  .
Þau fá íbúðina afhenta í dag og ætla að reyna að mála einhvað um
helgina og eftir helgina. Ég ætla til Akureyrar og við Jóna ætlum
að passa einhvað svo þau geti málað. Annars er það að frétta að
Solla er komin til landsins og kemur norður á morgun til að djamma
með hinum tíu ára stúdentunum. Hún verður rúmlega viku og fer þá
aftur til Gunna og Arndísar Dúnu en þau komu ekki með. Jæja það er
best að fara að borða salltkjötið og rófurnar, bið bara að heilsa í
bili.
»
10.06.2007 14:51:36 / duna54
Já ég er í ömmuhlutverkinu í dag, ég sótti Róman Darra í gærkvöld
og hann vakti ömmu gömlu rétt upp úr sex í morgun, algjör
morgunhani drengurinn enda sofnaði hann rúmlega sjö í gær á
leiðinni frá Raufarhöfn. Svo býst ég við að Sigga komi með hin
börnin kanski á mánudagsdkvöld eða þriðjudag. Annað ekki í fréttum,
bið að heilsa bæbæ.
»
06.06.2007 14:12:38 / duna54
Það hefur ýmislegt verið um að vera síðustu tvær vikur, við
fórum suður á fimmtudegi 24 mai, auðvitað urðum við of sein til að
komast í útskriftina hjá Laufeyju Björgu sem var leiðinlegt því hún
dúxaði auðvitað og fékk 7 verðlaun. En við náðum í veislu hjá
henni. Svo vorum við með íbúð á Freyjugötunni góð staðsetning, en
hljóðbært. Svo fór ég til Sandgerðis og þar í brúðkaup mikið
skemmtilegt, Ég gisti hjá mömmu og hafði það gott. Svo var
fermingarveisla nr 2 á haldin á Hótel Sögu á mánudeginum, það kom
svipaður fjöldi eins og hér=yfir 80 manns. Tengdó sagði að þetta
væri líka erfisdrykkja þeirra beggja, það væri mikið skemmtilegra
að geta mætt í hana sjálf.Kaldhæðni.
Systkyni Þrastar frá usa komu tvö Steini með konuna og Óla með
dótturina. Steini og Keelie fóru svo með okkur norður og vildu fara
á pöbb svo það var farið á Vélsmiðjuna(maður má ekki detta í það
nema Ottó viti það.) Fórum svo heim á laugardaginn og Þröstur fór
svo á mánudaginn með þau austur Öddi er líka með þeim. Þau eru að
koma til Rvíkur í kvöld því Steini og Keelie fara út á
föstudag.
Við fórum líka á tónleikana með Uriah Heep og Deep Purple í
Laugardagshöll.
Silla stóra systir varð svo 60 ára 29 mai og ég hitti hana
aðeins þann dag hjá Maddý.
Ég er líka búin að pannta ferð til Spánar 19 júlí fyrir okkur
fjögur, (Goggi borgar sjálfur sitt)
En ég er bara heima og þarf að baka og vinna fyrir kvennfélagið
því það er jarðarför á föstudag en kvennfélagið sér um
veitingarnar. Þetta var nú stiklað á stóru því ég nenni ekki að
skrifa meira. Hafið það gott í sólinni,(það er sól hér)
»
03.06.2007 12:27:04 / duna54
Já ég er komin heim, setti nokkrar myndir inn. Blogga seina.Bæbæ.
»
21.05.2007 08:01:29 / duna54
Í morgun vaknaði ég við sól og fuglasöng. Já ég hélt að það væri
komið langt fram á dag, en klukkan var ekki orðin sjö.Annars hefur
lítið verið um að vara þessa helgina nema afslöppun hjá mér. Ég
ætla nú ekki að bulla neitt að ráði í dag enda alveg andlaus eins
og flesta aðra daga. Hún Solla mín er 30 ára í dag til hamingju með
það stelpa, vá þá er bara Fanney sem er ekki kominn á
fertugsaldurinn. Skil þetta ekki þar sem ég er bara 29e eða svo.
Hafið það gott.
»
17.05.2007 23:07:20 / duna54
Til hamingju með afmælið þitt Arndís Dúna. Já nú er hún nafna
mín í Amríkunni orðin 4 ára.
Annas er ekkert að frétta, allt rólegt hér hjá mér=afslöppun.
Bið að heilsa ykkur.
»
15.05.2007 22:17:31 / duna54
Já þá er seinasti dagurinn í sundúthaldinu á morgun, og þá
verður ruslatýnsla líka. Krakkarnir ganga meðfram veginum og hirða
allt ruslið sem safnast hefur síðan í fyrra. Þetta er gert á hverju
ári og er mjög þarflegt verk, síðan eru grillaðar pylsur í Lundi.
Svo byrjar sauðburðarþemað á föstudaginn. Jónína er nú óð í að fara
strax eftir skóla á morgunn og allt er látið eftir henni, hún
verður örugglega í góðu yfirlæti hjá fjölskyldunni á Fjöllum, ekki
hætta á öðru.
Ég er búin að fá einkunnirnar úr Félagsfræðinni og Leik og
Leikuppeldi, kennararnir hafa verið í góðu skapi því ég fékk 10 í
báðum fögum. (Nema ég sé bara svona gáfuð)
Góða nótt og hafið það gott.
»
14.05.2007 21:39:20 / duna54
Það hefur ýmislegt gerst síðan ég bloggaði seinast. Búið að
kjósa og greinilega hafa einhverjir kosið blessaðan D listann,
allavega féll stjórnin ekki.
Svo var náttúrlega mæðradagurinn í gær,ég mundi nú ekki eftir
honum fyrr en Jóna hringdi til að óska mér til hamingju með
daginn.
Svo skeðu þau stórtíðindi að mamma (hún er 81 árs) fékk sér
tölvu. Með hjálp Jónu og Laufeyjar.Jóna verslaði hana en Laufey og
Kjartan fóru með hana til hennar í gær, svo nú bíður sú gamla eftir
nettengingu og þá verður maður nú að passa að skrifa ekkert illt um
múttu. Hee ekki eins og ég sé vön því. Allveg er ég viss um að
mamma verður tölvunörd ekki minni en ég, enda gaman fyrir hana að
geta fylgst með börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum á netinu,
enda eru afkomendur hennar orðnir ansi margir.eða um 70
stykki.
Hafið það svo gott
»
11.05.2007 23:46:33 / duna54
Þá eru kosningarnar á morgunn, kjósið en bara ekki D listann. Hér
er allt gott að frétta ég geri bara það sem mig langar til ekkert
nám og hvað á ég á að gera?? Hafið það gott.
»
08.05.2007 21:58:43 / duna54
Lítil/stór stúlka fæddist á Akureyri í dag.Dóttir Guðrúnar Liliju
og Adda. Hún mun hafa verið 18 merkur og 54 cm. Til hamingju með
það. Þá er einum fleirri íbúar á Skerinu.
»
05.05.2007 22:34:37 / duna54
Það er búið að snjóa og síðan er snjórinn alveg að hverfa en það
er skítkalt, allavega mikill munur eða góðu sólardagana. Veðurspáin
næstu daga er nú ekkert til að hrópa húrra fyrir enda er að koma
sund í Lundi næstu daga til 16 mai, ætli það verði kuldi alla þá
daga?
Ég er alveg andlaus núna enda ætti ég að vera að læra fyrir
félagsfræðipróf á mánudag.Það er flest betra en lesa glósur

Nokkrir læknabrandarar.
Sjúkl. er fertug, að öðru leyti ekkert athugavert.
"Við rectal skoðun á sjúklingi, kemur fram áberandi
kyndeyfð." "Sjúkl. hefur átt við gott
heilsufar að stríða." "Sjúkl. á vanda til að fara
austur í sveit um helgar. Þar datt undan henni hestur."
"Sagan er fengin frá uppgefnum ættingja." "Hún hefur
þroskast eðlilega framantil." "Nú er svo komið
fyrir henni að hún getur að mestu hjálpað sér sjálf.
"Sjúkl. hefur formlegar hægðir." "Sjúkl. lærði
söngnám. " "Sjúkl. er svo hress að hann gæti farið
landleiðina til Akureyrar." "Sjúkl. batnar ef lagst
er ofan á hana (medicin)." "Sjúkl. fékk þá mjög
langsótt kvef." "Sjúkl. hefur verið mædd s.
l. 5 ár." "Móðir getur látið barnið sitja með því að
láta fæturna í hring." "Misnotaði áfengi í óhófi áður
fyrr." "Að höfðu samræði við lækni féllst hann á að
koma sjálfviljugur inn." "Fékk vægan verk undir
morgunsárið." "Þessi maður veit ekki skyldleika í
ætt." "Sjúkl. tekur engin lyf, en Magnyl þess á
milli." "Leitað er að náraherníu liggjandi og
standandi." "Skoðun leiðir í ljós unglingspilt."
"Sjúkl. var í morgun að drekka te og borða maís þegar
að bar mann sem heitir Kristmundur."
"Sjúkl. hefur fremur óbærilega
verki." "Sjúkl. borðar reglulegt
mataræði. " "Daginn fyrir innlögn borðaði hún
kvöldmat á eðlilegan hátt, með kjötbollum, eftir það var hún
í samkvæmi." "Við komu á spítalann var
sjúkl. fljótlega skoðaður af undirrituðum, og
kemur þá í ljós að um er að ræða 46 ára gamlan karlmann sem
er þrekvaxinn og
vöðvastæltur." "Sjúkl. hefur
aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar hann vaskar
upp í sumarbústað, en er ráðlagt eftirlit, ef verkirnir
koma fram við önnur tækifæri. " "Sjúkl. hefur
verið í vandræðum með gervifótinn, en hann hefur haft fjóra
fætur frá því að hann lenti í slysinu, en þann síðasta fékk hann í
apríl s.l."
"Sjúklingur fær verki í bringunni ef hún liggur á vinstri hlið
lengur en í eitt
ár." "Á öðrum degi var
hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið."
"Sjúklingur hefur verið niðurdreginn alveg síðan hann
byrjaði að hitta mig árið
1983." "Sjúklingur
er tilfinningalaus frá tá og niðurúr." "Sjúklingur tárast og
grætur stöðugt. Virðist líka vera
niðurdreginn."
"Sjúlkingur hefur skilið hvítu blóðkornin heftir á öðrum spítala."
"Sjúklingur er ekki þekktur fyrir að fremja
sjálfsmorð." "Sjúklingur var í
góðu ásigkomulagi þar til flugvélin hans varð
eldsneytislaus og hrapaði." "Hún rann til á
svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið í sitthvora
áttina í byrjun
desember." "Þegar hann
var lagður inn, hafði ör hjartsláttur stoppað og honum
leið betur." "Sjúklingur fékk sér vöfflur í
morgunnmat og lystarstol í
hádeginu." "Húðin var þurr og
rök"
Látið ykkur ekki verða kallt svo þið kvefist ekki. 
»
03.05.2007 23:09:35 / duna54
Já nenni ekki að segja neina sögu núna, geri það seinna segir sá
lati. Ég ætlaði bara að láta ykkur sem öfunduðuð mig af 22 stiga
hitanum um helgina, vita að það er komin snjókoma. Já það má segja
að það kingir niður snjónum og ég fór út áðan og klippti
páskalilijurnar sem voru komnar og setti þær í vasa inni. Já ég er
hrædd um að þessir hlýindadagar séu ekkert góðir fyrir gróðurinn ef
það ætlar að frysta mikið. Hér eru runnar að springa út og grasið í
garðinum að verða grænt(maður sér mun á hverjum degi) En á
þriðjudaginn 1 Mai kom Sigga Magga og öll hennar sex manna
fjölskylda í heimsókn og það var grillað læri, kartöflur og
maisstangir sem við borðuðum úti í garði í fínasta veðri. Enda voru
tvíbbarnir óðir á fjórum fótum um allan garð, sennilega í fyrsta
skipti sem þeir eru svona lengi úti á grasi að leika sér.
Seinasti dagurinn í skólanum á Skerinu er á morgunn, því eftir
helgi verður farið í sundúthald í Lundi. Svo eru skólaslit 23 mai,
þetta fer að styttast. Ég býst við að fara suður 23 eða 24
mai og vera þar í rúmma viku, við verðum með íbúð. Steini bróðir
Þrastar og konan hans eru að koma til Íslands 26 mai og líka Óla
systir Þrastar með dóttir sína Dísu, og svo á að verða
fermingarveisla nr 2 í Reykjavík 28 mai.
Hafið það gott og góða nótt.
»
27.04.2007 22:47:07 / duna54
Já þessa dagana er líf mitt frekar rólegt, ég er ekki að þrífa í
skólanum vegna verkja, en er aðeins byrjuð að kíkja á heilsó, en er
sko búin að fá miklu meira en nóg eftir hálft þrif þar.Ekki vel
þrifið verð bara að skreppa aftur og klára. En ég á eftir að
klára að gera heimaprófið í Félagsfræðinni og það þyrfti að laga
aðeins til hér, þótt Goggi hafi verið ofvirkur um síðustu helgi og
skúrað allt og lagað til. Hann var sko duglegur. Ég átti að baka
eina brúna tertu(röndótta) fyrir erfisdrykkjuna hans Jóhanns míns í
Leirhöfn og hélt að það væri nú lítið mál, Þröstur á mjög góða
uppskrift og HANN bakar hana alltaf fyrir jólin. Já ég hræðri í
kökuna og setti svo í ofninn og fór að læra. En auðvitað ofbakaðist
kakan og varð hörð, ég er að hugsa um að fara til a til Akureyrar á
morgun, bara svona að gamni mínu ekkert erindi, það er sjalgjæft að
ég geri það. Ég vil að endingu þakka Gunsu minni fyrir að leysa mig
af á heilsó, ástarþakkir Gunsa mín ég vildi að ég gæti borgað þér
til baka Láttu mig vita ef ég get einhvað gert fyrir þig.Hún þreif
gamla skítinn eftir mig) Sidda djöflaðist á bakinu á mér í morgun
ég er aum en fór og þreif heilsugjæsluna í kvöld, var að hugsa um
að hætta í miðju kafi, þráinn kláraði. Eða ég. Næst ætla ég að
segja ykkur sögu. Bara smásögu. Mér þykir vænt um ykkur.
Bless
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|
|